Styrkur frá Norðurorku
05.02.2024
Gaman er að segja frá því að Norðurorka styrkir FLL-samvalið í Lundarskóla árið 2024.
Með stuðningi Norðurorku gefst nemendum möguleiki á að taka þátt í First LEGO League- keppninni sem haldin er í nóvember á hverju ári í Háskólabíói.
Á myndinni tekur Jón Aðalsteinn við styrknum úr hendi Eyþórs Björnssonar forstjóra Norðurorku.
Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn sem mun sannarlega koma sér vel.