Hjólareglur


Hjólareglur Lundarskóla

  1. Nemendur sem náð hafa 7 ára aldri mega koma á hjóli i Lundarskóla. Nemandi sem kemur á hjóli í Lundarskóla gerir það á áhættu og ábyrgð foreldra/forráðamanna sem skulu meta færni og getu nemandans sem og aðstæður til að hjóla í skólann. Óleyfilegt er að koma á reiðhjóli í Lundarskóla nema að nota viðeigandi öryggisbúnað.
  2. Ekki má nota reiðhjól né hlaupahjól í frímínútum eða meðan á skólastarfi og Frístundargæslu stendur. Það getur leitt til slysa nemenda sem eru að leik á skólalóðinni. Því er hjólaumferð ekki leyfð á skólalóð frá kl. 8-16. Við brot á þessari reglu má skólinn kyrrsetja hjól og skal foreldri eða forráðamaður þá sækja hjólið.
  3. Hjólabretti má nota í frímínútum á viðeigandi stað (hjólabrettarömpum) með viðeigandi búnað (hjálm).
  4. Þegar komið er á hjóli í skólann á að geyma hjól læst á skólalóðinni í eða við hjólagrindur. Skólinn ber enga ábyrgð á hjólum. Ef hjól týnist, skemmist eða annað slíkt er ekki hægt að óska eftir skoðun atvika í öryggismyndavélaupptökum. Þjófnað eða skemmdarverk getur viðkomandi kært til lögreglu.
  5. Hjól má ekki nota á milli KA heimilis og skóla á skólatíma nema íþróttir séu fyrsti eða síðasti tími nemanda.

6. Þessar reglur gilda einnig fyrir rafknúin hjól.