Í Lundarskóla berum við ÁBYRGÐ á námi/starfi okkar og hegðun, við sýnum nemendum og starfsfólki VIRÐINGU og leggjum áherslu á VELLÍÐAN og almennt heilbrigði í okkar störfum. Í skólanum er lögð áhersla á faglegt skólastarf, teymisvinnu og samstarf, heildstætt skipulag um nám, kennslu og námsmat. Í skólanum er unnið með SMT skólafærni og Heilsueflandi grunnskóla og hugmyndafræði um lærdómssamfélag.